Afríka Ævintýraferðir - afrika.is
Fara beint í leiðakerfi vefjarins

Sól og safarí

Safaríferð er ógleymanleg upplifun

Ferðin í hnotskurn

  • Lagt af stað: 15. október '09
  • Lengd: 15 dagar
  • Land: Kenya
  • Hápunktar: Safarí, sól, strönd og menning innfæddra
  • Hámarks fjöldi í ferð: 24
  • Lágmarks fjöldi í ferð: 15

Ógleymanleg ævíntýraferð til Kenya

Ferðin hefst í höfuðborg Kenýa, Nairobi þar sem meðal annars verður farið á Karen Blixen safnið, í gíraffagarð og munaðlausir fílskálfar verða heimsóttir. Leiðin liggur svo í þekktasta þjóðgarð Kenya, Masai Mara þjóðgarðinn. Í Masai Mara er að finna helstu dýr sem við tengjum við Afríku meðal annars, fíla, ljón, hlébarða, nashyrninga, buffala, gíraffa og antilópur. Frá safarí og villidýrum verður flogið til hinnar fallegu strandar Diani sem er við Indlandshafið. Þar er eins og tíminn standi í stað, pálmatrén blakta í golunni, sjórinn er fallega blágrænn og þar er eitt fallegasta kóralrif í heimi. Það er dásamlegt að liggja undir pálmatré á hvítsendinni ströndinni og horfa á veiðimennina koma að landi á eintrjánungum með afla dagsins eða fara í sjóstangaveiði, köfun eða skoða skrautfiska. Við ströndina heimsækjum við þorp Digoættflokksins þar sem við fræðumst um siði og venjur þeirra. Í lok ferðar verður farið til hinnar sögufrægu hafnarborgar Mombasa þar sem í boði er að ganga um gamla hluta borgarinnar og fræðst um sögu og menningu þessarar merkilegu verslunar- og viðskiptaborgar. Endað verður á kvöldsiglingu undir stjörnubjörtum Afríkuhimni.

Úrvals Útsýn
 
Ferðin er unnin í samvinnu við Úrval Útsýn
 
Bóka ferðina á vef Úrvals Útsýn

Sendu okkur fyrirspurn til að fá nánari upplýsingar um ferðina, þ.m.t. upplýsingar um verð.
Arabísk kaffikanna
Brosandi Masai stúlka
Elín og strákarnir í safaríi
Borgar og Elín
Leiðarlýsing

Upplýsingar um daga og atburði ferðarinnar

Dagur: 1 - 15. okt.

Flug til Kenya:
Brottför frá Keflavík til Heathrow og áfram til Nairobi höfuðborgar Kenya um kvöldið.

Dagur: 2 - 16. okt.

Nairobi höfuðborg Kenya: ( K )
Lent í Nairobi snemma dags kl. 6:30 og ekið að hinu glæsilega Ole- Sereni hóteli sem er í u.þ.b. 10 mínútna aksturleið frá flugvellinum, staðsett í útjaðri Nairobi þjóðgarðsins. Þar dveljum við í tvær nætur. Þennan dag er tilvalið að slaka á eftir flugið og njóta aðbúnaðar á hótelinu og hver veit nema að hægt verði að koma auga á villt dýr frá þakgarði hótelsins. Kvöldmatur snæddur á Ole–Sereni.
Gist á Ole-Sereni í Nairobi.

Dagur: 3 - 17. okt.

Nairobi dagsferð: ( M / H / K )
Þennan dag könnum við Nairobi og nánasta umhverfi. Meðal annars verður farið að fyrrverandi heimili Karenar Blixen og fræðst um hana. Einnig verður verndarsvæði fyrir gíraffa skoðað sama dag sem og Sheldricks "uppeldistöðina" fyrir foreldralausa fílskálfa. Einnig heimsækjum við Nyumbani heimilið fyrir munaðarlaus, HIV smituð börn. Um kvöldið förum við út að borða á einn frægasta veitingastað í Afríku, "Carnivores" sem sérhæfir sig í villibráð.
Gist á Ole-Sereni í Nairobi.

Dagur: 4 - 18. okt.

Nairobi - Masai Mara þjóðgarðurinn: ( M / H / K )
Snemma morguns, eftir ríkulegan morgunmat á Ole–Sereni, er haldið af stað í suðurátt að Masai Mara þjóðgarðinum. Leiðin liggur að hluta í gegnum svæði Masai fólksins sem enn lifir að miklu leyti eftir sínum gömlu hefðum. Í Masai Mara má finna flest öll dýr sem við tengjum við Afríku t.d. fíla, ljón, flóðhesta, gnýi, hlébarða ofl., ofl.
Gist verður á glæsilegum stað inni í þjóðgarðinum, Mara Simba Lodge.

Dagur: 5 - 19. okt.

Masai Mara þjóðgarðurinn - safarí: ( M / H / K )
Safaríferð um Masai Mara. Ekið um á bílum með þaki sem hægt er að lyfta upp til að ná góðum myndum. Engin orð geta lýst því hvernig það er að aka um sléttur Afríku og skoða villidýrin í sínu rétta umhverfi. Heimsókn í Masai þorp. Masai þjóðflokkurinn lifir eftir gömlum venjum og siðum og er einstaklega stoltur og flottur. Við munum fræðast um venjur þeirra og daglegt líf og einnig verður hægt að kaupa handverk þeirra beint af fólkinu sjálfu
Gist á Mara Simba Lodge.

Dagur: 6 - 20. okt.

Masai Mara þjóðgarðurinn – Diani ströndin: ( M / K )
Þeir sem vilja geta farið í loka safarí um morguninn, hinir geta hvílt sig fyrir ferðalagið framundan. Um hádegi er ekið að litlum malarflugvelli í hjarta garðsins þar sem að 20 manna vél bíður okkar og flýgur tæplega tveggja tíma leið beint að hinni kristaltæru Diani strönd við Indlandshafið.
Gist verður á hinu smekklega Indian Ocean Beach Club.

Dagur: 7 - 21. okt.

Diani ströndin: ( M / K )
Á Diani eru strendurnar enn þá eins og maður ímyndar sér að þær eigi að vera. Pálmatrén blakta í golunni og hrein ströndin tekur á móti tærum og volgum sjónum. Enn gefur að líta hefðbundnar skútur innfæddra, er þær sigla til dæmis til Zanzibar eða annarra eyja með krydd og framandi varning. Hér gefst okkur tími til að slaka á og gleyma Vestrænu stressi og áhyggjum. Alls kyns skart og handunnin vara er til sölu í litlum strákofum við ströndina og tilvalið að prútta við sölumenn um kaup og kjör. Upplagt er að fara í golf eða sjóstangveiði á meðan aðrir kjósa að fara í nudd eða snyrtingu og láta dekra við sig.
Gist á Indian Ocean Beach Club.

Dagur: 8 - 22. okt.

Diani ströndin/Sérferð fyrir áhugasama: Skútursigling – dagsferð: ( M / K )
Siglt að kóralrifjum á hefðbundnum skútum þar sem er hægt að "snorkla" og skoða skrautfiska í sjónum við kóralrifið. Ef heppnin er með manni má sjá höfrunga leika sér í sjónum. Á heimleiðinni er komið við í hellum sem áður geymdu þræla. Athugið að skúturnar sem siglt er í eru hefðbundnar tréseglskútur byggðar eftir upprunalegri fyrirmynd skúta, sem sigldu milli Mombasa og Zanzibar með krydd og annan varning sem og þræla.
Gist á Indian Ocean Beach Club.

Dagur: 9 - 23. okt.

Diani ströndin/Kaya skógurinn - hálfsdagsferð: ( M / K )
Farið í létta gönguferð um upprunalegan regnskóg og fræðst um sögu fólksins sem þar bjó á árum áður. Í lok ferðar er hægt að kíkja í heimsókn í nærliggjandi þorp þar sem við fáum innsýn í daglegt líf fólks við ströndina.
Gist á Indian Ocean Beach Club.

Dagur: 10 og 11. - 24. - 25. okt.

Diani ströndin: ( M / K )
Það er reynsla margra að gott sé að slaka á í við ströndina í nokkra daga en það er líka nóg að gera ef að fólk vill. Það eru margir veitingastaðir við ströndina og um að gera að njóta alls þess sem þeir bjóða upp á. Einnig er gaman að prútta við innfædda og kaupa alls kyns skart og minjagripi.
Gist á Indian Ocean Beach Club.

Dagur: 12 - 26. okt.

Diani ströndin - Mombasa: ( M / K )
Ekið til hafnarborgarinnar Mombasa um hádegisbil. Við munum dvelja á hótelíbúðum á hinu vel staðsetta Tamarind Village. Íbúðirnar eru með 2 eða 3 herbergi (sér baðherbergi) en íbúar deila með sér rúmgóðri stofu og svölum er snúa út að Nyali sundinu. Um kvöldið þegar allir hafa skipt yfir í betri fötin og fengið sér fordrykk úti á svölum göngum við niður steintröppur og um borð í Tamarind skútuna sem mun sigla út á sund. Þar verður grillað sjávarfang um borð og snætt undir stjörnubjörtum afrískum himni á meðan tónlistarmenn leika af fingrum fram.
Gist á Tamarind Villages.

Dagur: 13 - 27. okt.

Mombasa/ Sérferð fyrir áhugasama - heilsdagsferð: ( M )
Eftir morgunverð verður hið forna virki Portúgala "Fort Jesus" skoðað og einnig gamli bærinn sem er með heillandi blöndu af arabískri/Swahili menningu. Í gamla bænum óma moskurnar og mannlífið er litrík og framandi blanda frá ólíkum menningarheimum. Að lokum er farið til Akamba verkstæðisins þar sem hægt er að gera góð kaup á handunnum trévörum.
Gist á Tamarind Villages.

Dagur: 14 - 28. okt.

Mombasa - Heimferð: ( M )
Slappað af fyrir heimferðina. Flogið frá Mombasa KQ 615 kl. 20:30 lent í Nairobi kl. 21:30. Flogið með Kenya Airways KQ 102 kl. 23:40 og flogið áleiðs til London.

Dagur: 15 - 29. okt.

Mombasa - Heimferð:
Lent í London kl. 05:45. Flogið er með Icelandair FI 455 kl. 13:00 og lent í Keflavík kl. 16:00.

Bóka ferðina á vef Úrvals Útsýn

Innifalið / Ekki innifalið

Innifalið

  • Íslenskir fararstjórar
  • Allt flug þ.e. frá Íslandi til Nairobi sem og innanlandsflug frá Nairobi til Masai Mara og Masai Mara til Mombasa
  • Gisting, sjá leiðarlýsingu
  • Þjóðgarðar og aðgangseyrir samkvæmt leiðarlýsingu
  • Máltíðir skv. leiðarlýsingu (M = morgunverður H = hádegisverður K = kvöldverður)
  • Innfæddir leiðsögumenn þegar þess þarf

Ekki innifalið

  • Vegabréfsáritanir ($50, fer fram á flugvellinum í Nairobi)
  • Sérferðir
  • Aðrar máltíðir en þær sem taldar eru upp í ferðalýsingu
  • Gos og áfengir drykkir
  • Þjórfé

Nánari upplýsingar og myndir

 Augnablikið

Úrillur fílstarfur í Queen Elizabeth National Park, Uganda

 Vissir þú

Hvert ljón þarf um að éta um 10-20 stór dýr yfir árið til að þrífast

 Myndir úr ferðum

Myndir úr ferðum

 Myndskeið úr ferðum

Myndskeið úr ferðum

 Fyrirspurnir

Viltu vita meira um ferðir og fyrirkomulag?

Sendu fyrirspurn