Afríka Ævintýraferðir - afrika.is
Fara beint í leiðakerfi vefjarins

Ævintýraferð til Kenya

Ferðin í hnotskurn

  • Lagt af stað: 04. nóvember '11
  • Lengd: 16 dagar
  • Land: Kenya
  • Lágmarks fjöldi í ferð: 10

Ferðin er unnin í samvinnu við Vita ferðir

Ferðast verður víða um þetta fjölbreytta land og við kynnumst framandi menningu og dýralífi. Ferðin hefst í höfuðborginni, Nairobi, þar sem gist verður tvær nætur. Í Nairobi heimsækjum við ABC heimilið sem er rekið af Þórunni Helgadóttur og fræðumst um það merkilega starf sem þar er unnið.

Verndarsvæði fyrir gíraffa verður einnig skoðað sem og Sheldricks Elephant Orphanage sem þjálfar munaðarlausa fílskálfa til að takast á við lífið út í náttúrunni. Heimili Karenar Blixen skáldkonu verður heimsótt og farið út að borða á Carnivore sem er þekktur veitingastaður í Afríku.

Frá Nairobi er ekið um Sigdalinn mikla að Naivasha vatninu og gist í tvær nætur. Farið verður í gönguferð um Crescent Island þar sem að zebrahestar, gnýir og antilópur ganga um en engin ljón! Að Crescent Island er stutt bátsferð og miklar líkur á að sjá flóðhesta á svamli. Skammt frá Naivasha er Nakuru þjóðgarðurinn sem umlykur samnefnt vatn og þangað ökum við. Þar má sjá fjölda flamingófugla auk pelikana og annara fugla. Í Nakuru eru einnig nashyrningar, buffalar og ljón auka margra annara dýrategunda sem þekktar eru í Kenya.

Kort af leiðinni sem farin verður

Nú höldum við í norður til Maralal þar sem Samburu ættbálkurinn ræður ríkjum. Gist verður í tvær nætur í einföldum „huttum” og óhætt er að segja að hér fáum við Afríku beint í æð! Í boði verður að fara í dagsgöngu með Samburu mönnum um landsvæði þeirra og heimsækja hefðbundið Samburu þorp. Þeir sem ekki vilja ganga geta slakað á yfir daginn og notið umhverfisins. Frá Maralal er ekið til Samburu þjóðgarðsins þar sem gist verður á glæsilegum stað í hjarta garðsins. Farið verður í safaríferðir og einnig farið í heimsókn til Umoja sem er þorp rekið af Samburukonum, eins konar kvennaathvarf.

Leiðin liggur svo aftur í suður með viðkomu á Sweetwaters svæðinu sem er skammt frá hæsta fjalli Kenya, Mt Kenya. Þeir sem vilja geta farið í safarí en annars er indælt að njóta þess að horfa á dýrin við vatnsbólið sem er rétt fyrir utan smekkleg herbergin. Daginn eftir er komið til Nairobi. Þaðan er flogið til Mombasa sem er við Indlandshafið og ekið að fallegri Diani ströndinni. Pálmatrén blakta í golunni og það er eins og tíminn standi í stað þegar horft er út á hafið þar sem að hefðbundnar seglskútur sigla til Zanzibar úti við sjóndeildarhring.

Margir veitingastaðir eru við ströndina, frá öllum heimshornum og er gaman að heimsækja þá. Einnig er auðvelt að prútta og pranga alls kyns varning af innfæddum í ótal smábúðum. Ferðinni lýkur svo með tveggja nátta viðkomu í hafnarborginni Mombasa þar sem gamli bærinn er skoðaður. Um kvöldið verður siglt út á Nyali sundið undir ljúfu undirspili á meðan gómsætir réttir eru snæddir undir stjörnubjörtum himni Afríku! Sannkölluð ævintýraferð sem lætur engan ósnortinn.

Á útleið:   Brottför:   Koma
4. Nóv. FI 450 Keflavík 09:00 London 04.Nóv 12:00
04.Nóv. KQ 610 London H 19:00 Nairobi, Kenya 05.Nóv 06:30+1
 
Innan Kenýa          
14.Nóv KQ 617 Nairobi 15:00 Mombasa 14.Nóv. 16:00
 
Á heimleið:     Komutími    
Nairobi 23:45 London H 20.Nóv 05:45
20.Nóv FI 451 London H 13:00 Keflavík 20.Nóv 16:00

Verð

Verð: 596.900 kr á mann í tvíbýli.
Aukagjald fyrir einbýli 117.600 kr.
 
Sendu okkur fyrirspurn til að fá nánari upplýsingar um þessa ferð.
Ferðalangur með veiði dagsins
Hádegismatur á Tamarind
Ávaxtamarkaður
Ungt karlljón
Fyrir nánari upplýsingar getið þið smellt á tenglana hér fyrir neðan:
Leiðarlýsing

4.Nóvember : Ferðadagur
Flogið frá London áleiðis til Kenya með næturflugi .

5. Nóvember : Nairobi höfuðborg Kenya

NairobiLent í Nairobi snemma dags og ekið að Jacaranda hótelinu sem við munum gista á í tvær nætur. Þennan dag er tilvalið að slaka á eftir flugið og njóta aðbúnaðar á hótelinu. Um kvöldið förum við út að borða á einn frægasta veitingastað í Afríku „Carnivores” sem sérhæfir sig í grilluðum kjötréttum m.a. krókódíl.
Gisting: Jacaranda hotel
Máltíðir: K

6. Nóvember : Nairobi – dagsferð
Karen Blixen safniðMunaðarlausir fílarGíraffaheimsóknABC heimilið

Þennan dag könnum við Nairobi og nánasta umhverfi. Meðal annars verður farið að fyrrverandi heimili Karenar Blixen og fræðst um hana. Einnig verður verndarsvæði fyrir gíraffa skoðað sama dag sem og Sheldricks „uppeldistöðina” fyrir munaðarlausa fílskálfa. Heimsókn á ABC heimilið fyrir munaðrlaus börn í Nairobi. Kvöldmatur snæddur á hótelinu.
Gistíng: Jacaranda hotel
Máltíðir: M, H, K

7. Nóvember : Nairobi – Naivasha
Sigdalurinn mikli - Crescent Island

Eftir morgunverð er ekið í suður um Sigdalinn mikla að Naivasha vatninu. Naivashavatnið er í Sigdalnum mikla og þar má finna fjölda fugla, flóðhesta auk annara dýra. Eftir hádegi verður siglt út í eyju sem nefnist Crescent Island og þar er hægt að ganga um eyjuna innan um zebra, gíraffa, gasellur o.fl. dýr. Það eru engin rándýr á eyjunni. Hér var hluti myndarinnar „Out of Africa” tekin upp.
Gisting: Naivasha Simba Lodge.
Máltíðir: M, H, K

8. Nóvember : Naivasha – Nakuru - Naivasha

Eftir morgunverð ökum við að Nakuru þjóðgarðinum u.þ.b. 1 ½ tíma akstur. Þar verður farið í safarí og komið heim seinni part dags. Nakuruvatnið er m.a. þekktast fyrir fjölda flamingófugla sem þar dvelur auk annara fugla og dýrategunda. Í Nakurugarðinum eru flest þau villtu dýr sem við tengjum við Afríku svo sem ljón, zebrahestar, gíraffar, buffalar, nashyrningar og fleiri dýr.
Gisting: Naivasha Simba Lodge.
Máltíðir: M, H, K

9. Nóvember : Naivaha – Thompsons falls
Miðbaugur – Rumurutti - Maralal

Lagt af stað strax eftir morgunmat og ekið í norður átt að Rumurutti. Á leiðinni er farið yfir miðbaug þar sem við stoppum og sjáum í raun hvernig hægt er að mæla að við séum stödd á miðbaug. Frá Rumurutti er u.þ.b. 3 tímar að Maralal. Þessi dagur verður ferðadagur en gaman er að sjá hvernig landslagið breytist og mannlífið er litríkt. Gist verður á litlu gistiheimili í tveggja manna húsum. Um kvöldið munum við borða afrískan mat á veitingastað gistiheimilisins.
Gisting: Yare Safari Club.
Máltíðir: M, H, K
Áhugavert : http://en.wikipedia.org/wiki/Nanyuki

10. Nóvember : Maralal-Úlfaldar -dagsferð

Eftir morgunverð verður lagt af stað í gönguna um fallegt og myndrænt landsvæði Samburumanna. Á þessum slóðum er mjög þurrt og heitt svo að góð sólarvörn og mikið af vatni er mikilvægt þennan dag. Gengið er í gegnum þorp og sveitir og inn í skóg og þaðan til baka að gistiheimilinu seinni part dags. Hægt er að ganga og einnig verður hægt að sitja úlfalda. Ekki er víst að öllum þyki það hin mesta þægindareið svo að valið er ykkar!
Gisting: Yare Safari Club.
Máltíðir: M,H,K

11. Nóvember : Maralal – Samburu þjóðgarðurinn.
Keyrt frá Maralal til Samburuþjóðgarðsins um fjölbreytt og fallegt landslag. Ef heppnin er með okkur þá komum við auga á einhvert hinna villtu dýra landsins út um gluggann. Þegar við komum í þjóðgarðinn dólum við okkur að gististaðnum í von um að sjá fjölbreytt dýralífið. Þeir sem treysta sér í eftirmiðdagssafarí fara í leiðangur en hinir geta slappað af og notið umhverfisins.
Gisting: Samburu Sopa lodge
Máltíðir: M,H,K

12. Nóvember : Samburuþjóðgarðurinn - safarí
Farið er af stað um morguninn fyrir sólarupprás á fjórhjóladrifnum jeppum. Það er ógleymanlegt að sjá þegar dýrin koma að vatnsbólunum eftir nóttina til að brynna sér. Í Samburuþjóðgarðinum eru flest þau villtu dýr sem við tengjum við Afríku; fílar, ljón, zebrahestar, strútar o.fl. Komið til baka í morgunverð. Síðan er hvíld fram að eftirmiðdegissafaríi. Keyrt er um garðinn með skilningarvitin þanin í leit að villidýrum. Komið aftur fyrir kvöldmat.
Gisting: Samburu Sopa lodge
Máltíðir: M,H,K

13. Nóvember : Samburu – Umoja, Kvennaþorp - Mt. Kenya - Sweetwaters
Umoja kvennaþorpið heimsótt, safarí í Sweetwaters og útsýni að Mt. Kenya.
Eftir ríkulegan morgunverð verður farið í Kvennaþorpið Umoja sem er í útjaðri Sambúruþjóðgarðsins.
Umoja þýðir sameining „unity” en það var stofnað árið 1990 af 15 konum sem höfðu verið beittar misrétti. Samburukonur eru einn af jaðarhópum í kenysku samfélagi en staða þeirra er lág og réttindi þeirra lítil.
Kvennaþorpið er rekið eingöngu af konum og er eitt af markmiðum þess að fræða aðrar konur af sama ættflokki um réttindi þeirra, heilsufar og annað sem þurfa þykir.

Í þorpinu í dag búa um 60 konur með börnum sínum og er þorpið sjálfbær eining í samfélaginu. Þær reka skóla, eru með búfénað og búa til skartgripi og annað til að selja á mörkuðum til að framfleyta sér.
Eftir heimsókn í kvennaþorpið verður farið að rótum hæsta fjalls Kenya „Mt. Kenya” (5199m) sem er næst hæsta fjall Afríku. Það stendur á fallegu verndarsvæði, Sweetwaters. Þar verður farið í eftirmiðdagssafarí og svo slakað á um kvöldið, með yfirsýn yfir fallegt vatnsból og ef heppnin er með okkur þá koma dýrin að fá sér sopa í sólsetrinu.
Gisting: Serena Sweetwaters
Máltíðir: M,H,K

14. Nóvember : Mt. Kenya – Nairobi - Diani
Safarí- Flug – Strönd

Eftir morgunverð verður farið í síðasta safarí ferðarinnar. Ekið er um fallegan Sweetwaters garðinn í leit að villidýrum. Eftir safaríferðina verður keyrt til Nairobi og flogið þaðan til Mombasa.
Eftir flugið tekur við akstur að Diani ströndinni sem er í 40 km suður af Mombasa.
Gisting: Galu
Máltíðir: M,K

15. Nóvember : Diani ströndin

Á Diani eru strendurnar enn þá eins og maður ímyndar sér að þær eigi að vera. Pálmatrén blakta í golunni og hrein ströndin tekur á móti tærum og volgum sjónum. „Túrisminn” hefur ekki enn þá hafið innreið sína inn í þessa paradís að neinu ráði sem gerir dvölina að einstakri upplifun. Enn gefur að líta hefðbundnar skútur innfæddra, er þær sigla til dæmis til Zanzibar eða annara eyja með krydd og framandi varning. Hér gefst okkur tími til að slaka á og gleyma Vestrænu stressi og áhyggjum. Alls kyns skart og handunnin vara er til sölu í litlum strákofum við ströndina og tilvalið að prútta við sölumenn um kaup og kjör.
Gisting: Galu
Máltíðir: M,K

16. Nóvember : Sérferð fyrir áhugasama
Skútusigling – dagsferð
Siglt að kóralrifjum á hefðbundnum skútum þar sem er hægt að „snorkla” og skoða skrautfiska í sjónum við kóralrifið. Ef heppnin er með manni má sjá höfrunga leika sér í sjónum. Á heimleiðinni er komið við í hellum sem áður geymdu þræla. Athugið að skúturnar sem verið er að bjóða eru hefðbundnar tréseglskútur byggðar eftir upprunalegri fyrirmynd skúta, sem sigldu milli Mombasa og Zanzibar með þræla, krydd og annan varning
Gisting: Galu
Máltíðir: M,K


17. Nóvember : Diani ströndin
Það er reynsla margra að gott sé að slaka á við ströndina í nokkra daga en það er líka nóg að gera ef að fólk vill. Það eru margir veitingastaðir við ströndina og um að gera að njóta alls þess sem þeir bjóða upp á. Einnig er gaman að prútta við innfædda og kaupa alls kyns skart og minjagripi.
Gisting: Galu
Máltíðir: M,K

18. Nóvember : Diani ströndin - Mombasa
Ekið til hafnarbæjarins Mombasa um hádegisbil. Við munum dvelja á hótelíbúðum á hinu vel staðsetta Tamarind Village. Íbúðirnar eru með 2 eða 3 herbergi en íbúar deila með sér rúmgóðri stofu og svölum er snúa út að Nyali sundinu
Um kvöldið þegar allir hafa skipt yfir í betri fötin og fengið sér fordrykk út á svölum göngum við niður steintröppur og um borð í Tamarind skútuna sem mun sigla út á sundi. Þar verður grillað sjávarfang um borð og snætt undir stjörnubjörtum afrískum himni á meðan tónlistarmenn leika af fingrum fram.
Gisting: Tamarind Villages:
Máltíðir: M,K

19. Nóvember : Mombasa – og heimflug
Gamli bærinn í Mombasa –Fort Jesus – tréútskurðarverkstæði - hálfsdagsferð
Eftir morgunverð verður hið Hið forna virki Portúgala „Fort Jesus” skoðað og einnig gamli bærinn sem er með heillandi blöndu af arabískri og Swahíli menningu. Í gamla bænum óma moskurnar og mannlífið er litríkt og framandi blanda frá ólíkum menningarheimum. Að lokum er farið til Akamba verkstæðisins þar sem hægt er að gera góð kaup á handunnum trévörum.
Gisting: Tamarind Villages
Máltíðir: M,K

Flogið heim um kvöldið

Innifalið / Ekki innifalið

Innifalið

  • Flug til og frá Kenya
  • Flug frá Masai Mara að Diani ströndinni
  • Gisting skv. ferðalýsingu
  • Málsverðir skv. ferðalýsingu
  • Akstur, ferðir og aðgangseyrir skv. ferðatilhögun
  • Safarí
  • Innfæddir leiðsögumenn þegar þess þarf
  • Allar ferðir milli flugvalla og hótela í Kenya
  • Íslensk fararstjórn

Ekki innifalið

  • Ferðatrygging, vegabréfsáritanir, gos, áfengir drykkir
  • Annað, sem ekki er talið upp í ferðalýsingu.
  • Lágmarksþáttaka í þessa ferð eru 10 manns og áskilur VITA sér rétt til að fella ferðina niður ef þátttaka næst ekki.

Nánari upplýsingar og myndir

 Augnablikið

Foradhani matarmarkaðurinn í Stone Town á Zanzibar, Tanzaníu

 Vissir þú

Karlkyns górillur verða stærstir allra prímata, geta orðið um 200 kg að þyngd en eru rólyndisskepnur

 Myndir úr ferðum

Myndir úr ferðum

 Myndskeið úr ferðum

Myndskeið úr ferðum

 Fyrirspurnir

Viltu vita meira um ferðir og fyrirkomulag?

Sendu fyrirspurn