Mt. Meru

Kilimanjaro án hæðarveikinnar og ferðamannanna
Mt. Meru (4,667m) er stundum kallað Kilimanjaro án hæðarveikinnar og ferðamannanna. Þó að Mt. Meru sé ekki eins tignarlegt og hátt og Kilimanjaro (5,895m) er það engu að síður afar skemmtilegt fjall að ganga á. Fjallið er það næst hæsta í Tanzaníu og er gengið í gegnum mýrlendi, skóglendi og engi en þarna má finna fleiri hundruð fuglategundir ásamt fílum, nashyrningum, bavíönum, svarta og hvíta Colubus apa og fleiri villt dýr. Þegar komið er til Arusha blasir Mt. Meru við. Fyrsta dagleiðin er að Miriakamba Hut (2,470m). Gott útsýni er þaðan yfir til Kilimanjaro. Þaðan er haldið áleiðis að Saddle Hut (3,500m). Lagt snemma af stað á toppinn (4,667). Snúið til baka í Miriakamba Hut. Keyrt áleiðis til Arusha.
Eftir gönguna er mælt með safaríferð t.d. í Serengeti garðinn eða Ngorongoro en þar má sjá öll þau dýr sem maður tengir við Afríku eins og fíla, zebrahesta, gíraffa, ljón, flóðhesta, antílópur og fjölda tegunda fugla, allt í sínu náttúrulega umhverfi. Eftir safarí er tilvalið að skella sér til strandar Zanzibar og hvíla lúin bein við tærblátt Indlandshafið.Í gamla hluta Zanzibar er nefnist „Stone town” eru göturnar þröngir ranghalar eins og í Þúsund og einni nótt þar sem moskurnar óma og angan af kryddi svífur í loftinu. Enginn ætti að sleppa því að fara í dagsferð ásamt innfæddum leiðsögumönnum og fræðast um kryddin og sögu Zanzibar. Fyrir þá sem vilja láta dekra við sig er ekki úr vegi að dvelja í nokkrar nætur við tæra og fallega strönd Indlandshafsins.
- Lengd ferðar: 8 dagar
- Fjöldi í ferð: 10 (eða fleiri/færri)
- Land: Tanzanía
- Áhugaverðir staðir: Arusha, Mt. Meru, Kilimanjaro
Fleiri möguleikar:
- Safaríferð í Serengeti
- Safaríferð í Ngorongoro
- Fleiri/færri dagar við ströndina
- Fleiri/færri dagar í Stone Town
- Dagsferð til Prison Island
- Nokkrar nætur á Pemba Island
- Með íslenskum fararstjóra en einnig er hægt að skipuleggja ferðir án fararstjóra
- Við leigjum einnig út fjórhjóladrifinn Land Cruiser með bílstjóra
Nánari upplýsingar og myndir
Augnablikið

Pakkað í poka við rætur Kilimanjaro fjallsins í Tanzaníu
Vissir þú
Tunga gíraffa getur orðið allt að 45cm löng
Fyrirspurnir
Viltu vita meira um ferðir og fyrirkomulag?
Sendu fyrirspurn





